Úff, hvað getur maður sagt? Þetta voru bara bestu 5 dagar sem ég hef upplifað í langan tíma! Ég gæti orðið ofur væmin en ætla ekki að verða það, þannig að þetta verður bara punktablogg. Þessi helgi einkenndist af:
- Bústaðarpartýi með bekknum þar sem mjög svo sérstök málefni voru rædd í pottinum, sem ég vona svo innilega að verða ekki rædd í bekkjarpartíum í framtíðinni! - Geggjaðri íbúð með frábæru fólki - Hori uppúr sturtuniðurfalli og miklu öskri i kjölfar þess - Því að fá snert af víðáttubrjálæði í nýju Glerártorgi - Rosa flottri íbúð sem okkur tókst mjög oft að gera að ekki svo flottri íbúð vegna drasls! - Soðnum kúk! - Rosa miklu áfengi - Óteljandi mörgum símtölum þar sem það eina sem var sagt var: "Hæ, ertu uppí íbúð?" "Já. " "Viltu opna?" - Hælaskóm og ónýtum fótum í kjölfar þeirra! - Bekkjarpartýi þar sem Sæþór var maðurinn, haha! - Trampolini! - Spretthlaupi hjá alltof mikið af fólki á Ráðhústorgi, þar sem enginn vissi afhverju hann var að hlaupa - Góðum mat - Frábærri stelpubíóferð - Hárgreiðslupanikki - Litríkum kjólum - Frábæru kvöldi þann16. júní. Get ekki nefnt neitt sérstakt í sambandi við það kvöld, það var bara allt svo gaman! - Að dansa berfætt á gólfi fullu af glerbrotum - Söknuð að vera ekki lengur með hvítan koll - Gráti og ælu? - Stöðluðum samtölum: "Hvað ert þú búin að vera að gera síðasta ár?" og " Hvað ertu að fara að gera í framtíðinni?" - "Hvernig er staðan með ísbjörninn?" - Þynnku í stúdentaveislum, með besta matinn! - Kveðjustundum
Sem sagt þessir dagar voru frábærir. Ég er pottþétt að gleyma einhverju, þar sem það var allt að gerast þessa helgi en það verður bara að hafa það. Ég hlakka bara svo til eftir 4 ár!
19. júní 2008 klukkan 13:58
Ellen Osp Víglundsdóttir 6 athugasemdir
Sótti um íbúð á stúdentagörðunum í nótt. Komst loksins í gegn að verða hálf tvö! Nú er bara að krossa fingur og vona hið allra besta. Veit ekki alveg hvað ég geri ef ég fæ ekki íbúð þarna, en þá hefst væntanlega alveg gríðar skemmtileg leit! Annars er ég búin að finna eitt sem mig langar í. Það er miði á tónleika með:
01. júní 2008 klukkan 13:31
Ellen Osp Víglundsdóttir 2 athugasemdir
Vá, hvað ég elska íslenskt sumar. Að það skuli vera bjart allan sólarhringinn er bara snilld. Var á næturvakt í gær, finnst oft erfitt að vaka, en það að það skuli aldrei verða dimmt núna er frábært og hjálpar mikið. Eitt skemmtilegt gerðist um daginn. Þannig er mál með vexti að ég er rosalega dreymin manneskja og get oft setið og dagdreymt um hina ýmsu hluti, þá oftast um að búa einhversstaðar annars staðar, í öðru landi... Alltaf þegar ég sé flugvél á himni ímynda ég mér hvert hún sé að fara og að ég sé einn af farþegunum á leið til framandi slóða. En fyrir stuttu sá ég þotu á lofti og áttaði mig allt í einu á því að mér væri alveg saman hvert hún væri að fara, langaði ekkert að vera farþegi í henni. Áttaði mig á því að ég vildi hvergi annars staðar vera en hér á Íslandi að upplifa þá hluti sem ég er að upplifa, að eiga þá hluti í vændum sem raun ber vitni. Þessi tilfinning var, verð ég að segja, frábær. Ég er ekki að segja að mér hafi áður fundist allt ömurlegt, bara alltaf haldið að grasið væri grænna hinum megin, sem ég hef smám saman áttað mig á að svo er ekki. Auðvitað eru hlutir sem ég vildi að væru öðruvísi háttað, en ég hef fulla trú á að allt muni ganga upp... Akkúrat núna hlakka ég til þess að hitta alla aftur eftir hálfan mánuð, keypti hinn fullkomna kjól fyrir júbeleringuna í dag, þannig að núna er bara að hlakka til! Svo eitt, hverjum langar að koma í tjaldútileigu í sumar? Elska að gista í tjaldi! Annars ætla ég að hætta þessu bulli og fara að horfa á How I met your mother (snilldar þættir). Ellen, sátt með lífið og tilveruna
30. maí 2008 klukkan 22:06
Ellen Osp Víglundsdóttir 3 athugasemdir
Lét loksins verða að því að sækja um í hjúkrun í HÍ í dag! Það kemur ykkur kannski ekkert á óvart...en ég var samt farin að fá second thoughts um þetta, eeen eftir langa og mikla umhugsun hef ég ákveðið að þetta vil ég læra og verð bara að standa og falla með því.... En ég hlakka til að fara suður, vera í kringum alla og byrja að læra aftur (lærdómsgleðin á þó pottþétt eftir að dvína mjög fljótt!). Mjög lítið að frétta, bara alltaf að vinna, ætla að skreppa til Rvk um helgina, svona rétt til að kveðja Elsu áður en hún fer til Valencia. Úff ég öfunda hana bara, vildi að ég væri að fara með, væri alveg til í að læra meiri spænsku;) En það verður vonandi bara seinna, er alveg heilluð af þessu tungumáli, langar að geta talað alveg reiprennandi spænsku einn daginn. Annars er ég farin að hlakka svo til þann 16. júní að ég get varla setið kyrr! Verður frábært að hitta alla aftur og fara loksins aftur á djammið á Akureyri. Sá á 4.T síðunni að Sigrún er byrjuð að skipuleggja, komin tími til! Haha...Fór annars að pæla hvar maður á að vera yfir þessa helgi. Ætlar fólk að grúppa sig saman og leigja íbúðir eða? Eða ætti maður bara að grípa í tjaldið...frekar erfitt að reyna að klæða sig upp fyrir júbileringuna í tjaldútileigu, en jæja! Kúka blogg, er farin að vinna!
03. apríl 2008 klukkan 14:56
Ellen Osp Víglundsdóttir 5 athugasemdir
Æi vá ég kann ekki að setja mynd inn í færslurnar! Allavegana þá er ég búin að setja leiðina sem við Gitta fórum um Suður Ameríku inn á kort af álfunni. Farið inn í myndir hér á blogginu (þ.e. ekki picasaweb) og kíkið á dýrðina!
------ Var að enda við að horfa á Gettu Betur...úff spennandi keppni, ég var hér ein heima og öskraði og æpti! Veit ekki alveg hvað nágrannarnir halda, haha...en þó að MA hafi ekki unnið þá stóðu krakkarnir sig alveg hreint frábærlega, til hamingju með það!
14. mars 2008 klukkan 21:32
Ellen Osp Víglundsdóttir Engin athugasemd
Jæja, þá er maður kominn heim í snjóinn og kuldann! Seinustu dagarnir í Buenos Aires voru mjög þægilegir, versluðum, borðuðum og dönsuðum og já horfðum á sjónvarpið! Það sem stendur mjög uppúr var þegar við (ég, Gitta og Hildigunnur) vorum staddar inn í búð sem sem seldi bara föt eftir unga hönnuði frá BA á mjög góðu verði;) Allavegana þá vorum við að byrja að skoða fötin þegar allt í einu hljómar Björk í tækinu, sem væri svosem ekki frásögu færandi þar sem Björk er mjöög fræg í Suður Ameríku, en diskurinn var á íslensku! Þau voru semsagt að hlusta á Glingló! Við vorum allar í sitthvoru horninu að skoða föt, en þegar diskurinn byrjaði að hljóma tókum við allar sprettinn og öskruðum á hvora aðra "Þetta er Björk! Á íslensku!!!" Mjög gott móment, veit ekki alveg hvað starfsfólkið hugsaði...en eftir þetta var alveg rosalega gaman í búðinni, við sungum á fullu með á meðan við skoðuðum þessi frábæru föt og auðvitað vorum við sannir Íslendingar og fórum út með hálfa búðina því að jú: "Þetta var bara gefins,þetta var svo ódýrt!" Eina sem skyggði á seinni hluta ferðarinnar hjá mér var að mér tókst að týna öllu kortaveskinu mínu, með debet og vísakortinu mínu sem og ökuskírteininu, rosalega skemmilegt það! Heimferðin gekk mjög vel. Var orðin mjög stressuð yfir því að þurfa að fljúga með flugfélaginu Mexicana Airlines en þær áhyggjur voru algjörlega óþarfar. Flugið frá Buenos Aires var rúmir 9 tímar að lengd og var allt tipp topp, fengum svaka flott sett gefins með augngrímu, sokkum, tannbursta og tannkremi í (þess má geta að þessi pakki made our day!);) Við fengum svo enn fleiri stimpla í Mexíkó, reyndar virtist konan vera eitthvað illa fyrirkölluð þar sem hún hitti varla með stimplinu á vegabréfin þannig að núna erum við Gitta með hálfan stimpil frá Mexíkó í vegabréfunum okkar! Þegar við komum svo til New York, tók allsvakalegur kuldi á móti okkur! Hostelið okkar var ekki beint það hlýjasta á svæðinu og þurfti ég að sofa í öllum heimsins fötum, með húfu, trefil og vettlinga þar á meðal...En í New York fórum við upp í Empire State building og sáum yfir alla borgina, fórum á söngleikinn Mamma Mia og misstum okkur yfir Abba og svo að lokum ákváðum við að vera menningalegar svona einu sinni í ferðinni okkar og fórum loks á safn! Fórum á the Met, sem var svo stórt og mikið að við urðum alveg ruglaðar inn í því og vissum aldrei hvað við vorum búnar að skoða og hvert við ættum að fara næst, svo kannski vorum við á einni hæð og sáum á neðri hæðinni eitthvað sem við vildum skoða en gátum svo aldrei fundið það þar sem við villtumst og lentum á alltöðrum stað en við ætluðum okkur! Þannig að við drifu okkur fljótt út, en náðum þó að strunsa í gegnum mjög stórann hluta safnsins, höldum við allavegana;) En við erum allavegana komnar heim reynslunni ríkari og mjög svo ánægðar með þetta ferðalag (eða ég er það allavegana)! Verð að segja að þetta var alltsaman miklu auðveldara en ég hefði haldið, hjálpaði held ég til að ég get talað spænsku og skildi því oftast hvað var í gangi í kringum okkur. Hefði alls ekki viljað fara þetta án þess að hafa þessa tungumálakunnáttu við hendina... Nú er bara spurning, hvert á að halda næst??
04. mars 2008 klukkan 19:10
Ellen Osp Víglundsdóttir 4 athugasemdir
Adeins vika tar til vid komum heim, aetti varla ad vera ad eyda tímanum í ad blogga en...
Allavegana Buenos Aires er frábaer borg! Seinustu helgi ákvádum vid ad nú vaeri kominn tími til kominn ad vid faerum ad dansa og drifum vid okkur tví á klúbba hér í borginni. Vá hvad tetta var gaman, var reyndar bara stutt á fostudag, tar sem hinar voru adeins of uppteknar vid eitthvad annad en ad dansa...haha...en á laugardag fórum vid og donsudum af okkur lappirnar;) En já, gaman líka bara ad fara á klúbba herna, svo allt allt odruvísi en heima...
Vid skruppum svo til Iguazu, ég og Gitta til ad sjá hina vídfraegu Iguazu fossa, ekki minna en 80 fossar tar á ferd og Gitta fossa-fan missti sig tegar hún sá dýrdina á medan ég var bókstaflega ad brádna úr hita! Myndir koma brádlega inn, kannski samt ekki fyrr en vid komum heim, hver veit.
Komum tilbaka í morgun, eftir seinustu rútuferdina okkar! Jejj, fínt ad vita ad naeturrúturnar verda ekki fleiri, núna taka bara flugvélar vid, en tad verdur bara kokubiti, 19 tíma ferdalag til New York, sem okkur finnst ekki neitt núna. Ádur hefdum vid samt líklegast misst okkur yfir ollu tessu ferdalagi, en eftir allar tessar naeturrútur tá aettum vid ad hondla nokkrar flugferdir.
En já, búnar ad reyna ad skoda borgina, búnar ad fara ad grof Evitu, fara á markad, versla og svo naestu daga aetlum vid ad reyna ad sja helstu stadina herna...
Finnst svolítid sérstakt ad vera ad koma heim, finnst vid vera bara nýlagdar af stad...Fer beint ad vinna tann 4. mars á slaginu 8 um morguninn, áhugavert ad sjá hvernig tad fer eftir alla tessa afsloppum sem vid erum búnar ad vera í sídasta mánudinn...
22. febrúar 2008 klukkan 20:59
Ellen Osp Víglundsdóttir 9 athugasemdir
Úff hvad tad er mikid búid ad gerast og vid búnar ad fara yfir mikid landsvaedi sídan seinast! Seinast var, hva í Santiago? Allavegana, tá fórum vid tadan til Valdivia, tòkum enn eina naeturrútuna (sem fara tó heldur faekkandi núna, sem betur fer). Í Valdivia fórum vid fyrst ad taka eftir týsku áhrifunum sem einkenna "The Lake District" eda "Vatnasvaedid". En tetta er mjog stórt svaedi af baedi Chile og Argentínu og tar er rosalega mikid af stórum votnum og allt mjog graent og fallegt, en á tetta svaedi fluttust Tjódverjar til fyrr á tímum og tessvegna er allt mjog týskt útlítandi. Allavegana, í Valdivia gerdum vid ekki mikid, nema tad eina markverda var ad vid fórum á kajak á á sem rennur í gegnum baeinn, svaka fjor!
Frá Valdivia fórum vid yfir til Argentínu, ,mjog fegnar ad komast tangad tar sem tad er allt svo ótrúlega dýrt í Chile (veit ekki alveg hvernig vid eigum eftir ad hondla Ísland tegar vid komum tilbaka)! Fórum til baejar sem heitir Bariloche og er staersti baer Vatnahéradsins.Tetta var ekkert smá fallegur baer, en manni leid samt eins og madur vaeri kominn til fjallaherada Sviss eda til Tirol. Tetta var svo ekkert líkt neinu Latino landi sem vid hofum komid til allavegana. Tarna var allt morandi í súkkuladibúdum, ísbúdum og bjórstodum, sem seldu bara sinn eigin bjór. Vid vorum á hosteli á besta stad í baenum, vid vatnid, tannig ad á morgnanna vaknadi madurvid olduganginn frá vatninu og horfdi yfir tad tangad til ad madur nennti á faetur og á kvoldin sofnadi madur eins yfir olduganginum! Fullkomid líf! Ég held ad vid hofum aldrei lifad jafn feitu lífi og tarna! Voknudum seint og um sídir, fórum og fundum okkur stad til ad borda morgunmat, lobbudum um baeinn, fengum okkur ís, keyptum okkur skran á gotumorkudunum, fórum heim á hostel og hengum eda logdum okkur oftast. Eftir tad var kominn tími á kvoldmat tannig ad vid fórum og fundum stad til ad borda, lobbudum svo meira um baeinn, skruppum svo kannski á bar og fórum svo heim ad sofa! Tetta var rosalegt og okkur var eiginlega haett ad litast á blikuna...Einn daginn ákvádum vid tó ad breyta útaf venjum okkar og fórum í ferd tar sem madur fór upp í trén og svo renndi madur sér á milli trjánna á svona vír eda tannig...mjog gaman. Tann daginn fórum vid líka upp í Cerro Otto, en tad voru fjallakálfar sem fóru med mann uppá fjall tar sem var svakalegt útsýni yfir allt vatnid og svona, en tid getid sed tetta allt á myndunum sem vid erum búnar ad setja inn.
Tegar vid vorum komnar med nóg af súkkuladibúdum og ís ákvádum vid ad tími var kominn til ad halda áfram og fórum tví hingad til Mar del Plata sem vid erum á núna. En hingad fórum vid til ad liggja á strondinni! Allir voru búnir ad vara okkur rosa vid tví ad koma hingad tar sem allir Argentínumenn kaemu hingad í sumarfrí (sem er núna) til ad liggja á strondinni. Ég trúdi tví taepast og sagdi bara "Hversu mikid fólk getur tetta eiginlega verid?" Já, ég held ad tetta hafi ekki verid gáfuleg setning tar sem ad vid hofum aldrei séd jafn mikid af fólki samantjappad á einni strond. Skodid myndirnar hedan og tá sjáidi tetta. Tetta er rosalegt, her er madur vid mann á strondinni og svo langar manni út í sjó en tá er madur vid mann líka tar, tannig ad ef madur lendir í oldu tá skolast madur á minnst 10 manns! En vid erum búnar ad vera trjóskir Íslendingar og erum búnar ad liggja á strondinni, aestar í ad fá lit. Held ad okkur hafi tekist bara nokkud vel upp í dag, erum ordnar nokkud brúnar og saellegar;)
Á morgun aetlum vid svo ad halda enn áfram og fara til Buenos Aires, borgarinnar sem allir eru búnir ad lofa og segja ad sé uppáhaldsborgin teirra í Sudur Ameríku, tannig ad vid hlokkum til! Aetlum ad fá ad troda okkur uppá Hildigunni og Birnu og fá ad gista hjá teim. Planid er svo ad skreppa einn dag til Montevideo, Urugvae og fara svo líka eina helgi og sjá Iguazu fossana, tetta verdur vonandi svaka stud!
Ellen
Ps: Birnu og Hildigunnar myndir fráBólivíu og Chile
15. febrúar 2008 klukkan 00:31
Ellen Osp Víglundsdóttir 2 athugasemdir
Jaeja ta erum vid komnar til Santiago de Chile, hofudborgar Chile. Erum herna a hosteli sem kallast la casa roja eda rauda husid. Her er tad sem eg hef verid ad vaela um ad fa ad hafa a hostelinu okkar amk einu sinni yfir ferdina og tad er sundlaug i gardinum! Herna i borginni er mjog heitt og erum vid tvi rosa fegnar eda eg allavegana yfir tvi ad geta tekid sma sundsprett og legid i solbadi yfir daginn tegar hitinn er ad kaefa mann...
Seinustu dagar okkar i Valparaiso foru i akkurat ekki neitt. Gitta var svo solbrennd ad hun la inni allan daginn ad marenera sig i allskonar olium, aloa vera, AD krem, after sun og svo loks hreinu jogurti. Eg nennti omogulega ad horfa mikid upp a tessa mareneringu tannig ad eg akvad ad fara bara i bio! Hah, ja eg for semsagt ein i bio og myndina I am legend, sem eg hafdi reyndar verid buin ad sja adur en tetta er bara svo god mynd og tad var ekkert rosa mikid um ad velja tegar kom ad tvi ad vilja sja mynd sem synd var a ensku. Ja, tannig ad eg hef afrekad tad ad fara ein i bio i Chile, sem var bara mjog gaman. Tegar eg kom tilbaka la Gitta enn upp i rumi oll utuotud i kremum, svaka party tar a bae!
En vid semsagt komum hingad til Santiago i gaer, eftir klukkutimarutuferd. Santiago er ofani dal umkringd fjollum tannig ad her er svakaleg molla a daginn, en tessi borg er mjog mengud og getur legid mengunartoka yfir a daginn, sem vid hofum to ekki upplifad og vid finnum ekkert rosalega fyrir menguninni sem betur fer.
I gaer akvadum vid ad tad vaeri kominn timi a ad vid fengum almennilegar steikur ad borda. Forum tvi a steikhus her rett hja sem maelt var med i Lonely Planet. Ekkert sma flott steikhus. Vorum ekki alveg vissar med hvad vid vorum ad panta okkur tar sem matsedillinn var allur a spaensku. Allavegana var utkoman tratt fyrir tad fullkomin. Eg fekk nautakjot med sveppasosu og Gitta nadi ad panta ser nautakjot vafid inni i beikon! Vid fengum svo med tessu gratineradar kartoflur og graenmeti. Fullkomin maltid. Tar sem Gittu steik var vafin inni i beikon var pinni i gegnum hana, sem Gitta akvad ad yrdi ad koma ur, eftir nokkra bita. Hun byrjadi ad toga og bifast eitthvad vid tetta, neinei vill ekki betur til en ad bitinn flygur ur hendinni a henni og beint a golfid! Tessi fullkomni matur farin til urskeidis. Vid litum a hvor adra og vissum varla hvernig vid attum ad haga okkur. Tangad til ad gaur a naesta bordi kallar svona til Gittu og bendir henni a ta stadreynd ad steikin hennar er a golfinu! Eg helt eg aetladi ad drepast ur hlatri, eins og vid vaerum ekki bunar ad taka eftir tvi! En allavegana, Gitta greip bitann og maltidin endadi med tvi ad vid bordudum saman minn mat og skildum eftir naestum heilan bita af kjoti. Tjoninn var lika frekar skritinn a svipinn tegar hann tok af bordinu okkar, en tad eina sem vid hugsudum um var ad fa reikninginn, borga og hlaupa ut! Besta maltidin hingad til:)
I morgun forum vid i vinsmokkun a vinraektunarsvaedid Concha y Toro. Tetta var ekkert sma gaman. Vid voknudum eldsnemma, hoppudum upp i metro og tokum svo rutu eftir tad til ad komast a stadinn. Vid vorum i hop med fjorum eldri bandariskum konum sem kolludu okkur islensku vini sina:) Vid smokkudum eina gerd af hvitvini og tvaer af raudvini. Skodudum svo lika allt svaedid og forum i vinkjallarana. Vid vorum alsaelar eftir tetta og anaegdar med ad hafa skellt okkur i tetta to ad vid hofum alls ekkert vit a vinum! Hugsadi allan timann til pabba og Peturs, hvad teir aettu miklu meira ad vera tarna heldur en eg! A morgun er meiningin ad fara ad skoda borgina og svo holdum vid liklegast afram a tridjudaginn, en hvert vitum vid ekki enn! Ellen ps: eitt svaka skemmtilegt sem gerdist, gleymdi alltaf ad segja ykkur fra tvi, en eg gleymdi simanum minum ovart a hosteli i Peru og hann finnst ekki (ekki spyrja hvernig eg gat verid svona heimsk) tannig ad eg a engan sima! En veit to allavegana hvad eg vil fa i afmaelisgjof:)
02. febrúar 2008 klukkan 23:04
Ellen Osp Víglundsdóttir 10 athugasemdir